Viðskipti erlent

Atvinnurekendur í Evrópu aðeins hóflega bjartsýnir

Þrátt fyrir að vísbendingar séu farnar að sjást í Evrópu um að kreppunni þar kunni brátt að ljúka eru evrópskir atvinnurekendur aðeins hóflega bjartsýnir á framtíðina. Áætlað er að efnahagur landa ESB dragist saman að meðaltali um 3,9% á þessu ári og hagvöxtur verði aðeins 0,7% á því næsta.

 

Grein er frá þessu á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að búist er við að kreppan muni hafa neikvæð áhrif um langa hríð á fjárfestingu , atvinnustig og fjármál opinberra aðila og grípa þurfi til fjölþættra aðgerða svo atvinnulífið blómstri á ný. Búist er við að verðbólga á evrusvæðinu á næsta ári verði að meðaltali 1,3% m.v. 0,3% á árinu 2009.

 

Þetta kemur fram í nýrri haustspá Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) um efnahagshorfurnar framundan. Í spá BUSINESSEUROPE segir að samtökin óttist það mjög að núverandi kreppa muni takmarka mjög vaxtarmöguleika fyrirtækja á næstu árum. Því sé mikilvægt að ráðast í tiltekin umbótarverkefni svo skapa megi ný störf og tryggja velferð.

 

Samtökin vara t.a.m. sterklega við aukinni verndarstefnu og því að stjórnmálamenn ætli sér að leysa flest vandamál með aukinni skattheimtu. Skynsamlegra sé að leita nýrra leiða innan opinbera geirans og nútímavæða rekstur hins opinbera.

 

Evrópusamtök atvinnulífsins leggja mikla áherslu á að virkni fjármálamarkaða verði tryggð og aðgangur fyrirtækja að fjármagni auðveldaður en þrátt fyrir mjög lága stýrivexti í Evrópu hefur fyrirtækjum reynst mjög erfitt að nálgast lánsfé. Þá telja þau mikilvægt að jafnvægi náist í fjármálum opinberra aðila án þess að atvinnulífinu verð íþyngt um of. Jafnframt telja samtökin mikilvægt að liðka fyrir fjárfestingu í nýsköpun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×