Viðskipti erlent

Unnið að endurfjármögnun á D´Angleterre

Nordic Partners, eigandi D´Angleterre og fleiri staða í Kaupmannahöfn, vinnur nú að endurfjármögnun á hótelinu. Jafnframt hefur veitingastaðanum Le Coq Rouge á Kong Frederik hótelinu verið lokað vegna tapreksturs.

Fjallað er um málið á business.dk en þar segir að í miðju fárvirðinu sem skapaðist í kjölfar bankahrunsins á Íslandi hafi Nordic Partners tapað stofnenda sínum og stjórnarformanni, Gísla Reynissyni sem lést skyndilega aðeins 43 ára að aldri.

Þeir þrír eigendur Nordic Partners sem eftir standa reyna að halda rekstrinum áfram þrátt fyrir þetta mikla áfall. Eignirnar eru, fyrir utan D´Angleterre og Kong Frederik , hótel Front og veitingahúsið Copenhagen Corner.

Rætt er við Jón Þór Hjaltason einn af eigendum Nordic Partners sem segir að engin breyting hafi orðið á rekstrinum eftir fráfall Gísla Reynissonar. Hann segir að nú sé unnið að endurfjármögnun á kaupum þeirra á fyrrgreindum eignum og séu viðræður í gangi um málið við alþjóðlega banka. Íslensku bankarnir hafi ekki krafta til að standa lengur í slíku.

Nordic Partners keypti dönsku eigurnar á yfirverði árið 2007 eða á rúmlega milljarð danskra kr. Kaupin voru fjármögnuð af Landsbankanum. Á sama tíma voru fjárfestarnir í stórum kaupum í Tékklandi á matvælafyrirtækinu Hamé.

Jón Þór segir að þeim hafi tekist að endurfjármagna kaupin á Hamé með samningum við þarlenda banka.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×