Formúla 1

Efast um heilindi Buttons í samningamálum

Jenson Button hefur verið gagnrýndur fyrir framgöngu í samningamálun.
Jenson Button hefur verið gagnrýndur fyrir framgöngu í samningamálun. Mynd: Getty Images

Eigendur meistaraliðsins í Formúlu 1 eru heldur sárir Jenson Button fyrir að yfirgefa liðið og ganga til liðs við McLaren. Liðið heitir nú Mercedes í stað Brawn, eftir að bílarisinn keypti það í vikunni.

"Samningamenn Buttons höfðu lítill samskipti við okkur, þrátt fyrir að við höfum óskað eftir frekari viðræðum. En þeir virðast hafa verið komnir á McLaren línuna. Tryggð hefði verið skemmtileg, en það er víst ekki við því að búast nú til dags", sagði Nick Fry, einn af eigendum Mercedes liðsins um málið.

Hann telur að Button hafi veirð búinn að ákveða að skipta yfir til McLaren fyrir all löngu síðan og hafi ekki komið hreint fram í samningaviðræðum við Ross Brawn og hann sjálfan síðustu vikuna.

Button lék vondan leik fyrir nokkrum árum þegar hann samdi við Williams og Honda á sama tíma og stóð uppi með tvo samninga. Þurfti Honda að kaupa upp samning hans við Williams til að fá hann um borð. Nú virðist Button aftur hafa misstigiið sig með umboðsmönnum sínum.

Sjá nánar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×