Viðskipti erlent

Alcoa: Reiknað með minnsta ársfjórðungstapi ársins

Bandaríski álrisinn Alcoa birtir uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung í dag eftir lokun markaða vestan hafs. Sérfræðingar reikna með minnsta ársfjórðungstapi ársins hjá Alco að þessu sinni að því er segir á Bloomberg fréttaveitunni.

 

Spá sérfræðinga er að tapið nemi 9 sentum á hlut, þ.e. rúmum 86 milljón dollurum eða tæpum 11 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að tapið á öðrum ársfjórðungi nam 26 sentum á hlut og á fyrsta ársfjórðungi nam það 54 sentum á hlut.

 

Samhliða þessu reikna sérfræðingar með að tapreksturinn snúist í hagnað á síðasta ársfjórðungi ársins og að hagnaðurinn nemi 6 sentum á hlut.

 

Þessar spár hafa gert það að verkum að hlutir í Alcoa hafa hækkað á mörkuðum vestan hafs undanfarna daga. Frá áramótum hafa hlutirnir hækkað um 23% sem er töluvert yfir hækkun Dow Jones vísitölunnar sem hefur bætt við sig 11% á tímabilinu.

 

Margir greiningardeildir hafa nú breytt ráðgjöf sinni hvað hluti í Alcoa varðar og mæla með kaupum á þeim. Talið er að mikill niðurskurður og hagræðing í rekstri félagsins á þessu ári muni skila góðum afkomutölum á næsta ári.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×