Viðskipti erlent

Gjaldþrot á hverjum degi í viku

Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar
Wall Street.
Wall Street.

52 bankar í Bandaríkjunum hafa orðið gjaldþrota á árinu en sjö bankar lýstu sig gjaldþrota í síðustu viku.

Þetta eru meir en helmingi fleiri bankagjaldþrot vestanhafs í ár en á öllu síðasta ári.

Hér er um að ræða litla og meðalstóra héraðsbanka í Bandaríkjunum. Af þeim sjö sem urðu gjaldþrota í síðustu viku voru sex í Illinois og einn í Texas. Langflest hafa gjaldþrotin hinsvegar orðið í Kaliforníu en það ríki glímir nú við alvarlegan fjárhagsvanda.

Í frétt um málið á CNN segir að samkvæmt upplýsingum frá tryggingarsjóði innistæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC) hafi gjaldþrotin í ár kostað sjóðinn 12,3 milljarða dollara, eða rúmlega 1.500 milljarða kr. Á öllu síðasta ári þurfti bandaríski tryggingarsjóðurinn að greiða 17,6 milljarða dollara vegna bankagjaldþrota en sjóðurinn tryggir allar innistæður upp að 250.000 dollurum. Sú upphæð var hækkuð úr 100.000 dollurum í fyrra.

Þessir héraðsbankar hafa orðið illa úti í fjármálakreppunni þar sem fasteignaverð hefur hrapað og atvinnuleysi aukist sem gerir almenning illa í stakk búinn til að standa við afborganir og vexti af lánum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×