Viðskipti erlent

Fékk innheimtubréf fyrir skuld upp á 0,00 krónur

Norska útvarpsmanninum Kim Nygård brá heldur í brún þegar hann fékk skilaboð frá símafyrirtækinu NetCom um að farsíma hans hefði verið lokað vegna ógreidds reiknings frá árinu 2007. Þegar hann fékk svo innheimtukröfuna frá fyrirtækinu hljóðaði hún upp á 0,00 kr.

 

„Hinn ógreiddi gjaldfallni reikningur pr. ....hljóðar upp á 0,00. Ekki verður komist hjá því að greiða hann," segir NetCom í kröfubréfi sínu til Nygård. Þar stóð ennfremur að verði upphæð greidd innan tilskilins frests, með 250 norskra kr. innheimtugjaldi verður síminn opnaður á ný.

 

Fjallað er um málið á vefsíðunni e24.no. Þar segir Nygård að málið sé meir en lítið flókið. „Hvernig fer maður að því að greiða 0 krónur," spyr hann brosmildur.

 

Þegar farsíma Nygård var lokað fékk hann aðvörun frá NetCom um skuldina. Nygård fékk síman opnaðan með loforði um uppgjör. Innheimtubréfið barst honum svo í pósti á vinnustað sinn, Radio 1, skömmu síðar.

 

NetCom hefur viðurkennt að um heimskuleg mistök hafi verið að ræða af hálfu fyrirtækisins. „Þetta innheimtubréf átti aldrei að senda út. Þetta er kerfisvilla á mörkum forheimskunnar," segir talsmaður NetCom í samtali við e24.no.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×