Viðskipti erlent

Nú er hægt að kaupa sér vini á Facebook

Markaðsfyrirtæki í Astralíu býður nú viðskiptavinum sínum upp á þann mörguleika að kaupa sér vini á Facebook. Stjórnendur þessarar vinsælu netsíðu líta uppátækið með hornauga.

 

Í frétt um málið á business.dk segir að markaðsfyrirtækið uSocial bjóði upp á tvo pakka af vinum. Hægt er að kaupa sér 1.000 vini og kosta þeir tæplega 200 dollara eða um 25 þúsund kr. Auk þess er hægt að fá tilboðspakka með 5.000 vinum og kostar hann ríflega þrefalt meira eða 654 dollara.

 

Þessum viðskiptum er einkum beint til fyrirtækja sem geta notað vinafjöldann til þess að dreifa auglýsingum frá sér á netið. Hin óvenjulega þjónusta uSocial felst í því að fyrirtækið stofnar Facebook hóp í nafni viðskiptavinarins og safnar svo inn á hann fólki sem hefur áhugamál sem tengjast þeirri vöru sem viðskiptavinurinn ætlar að selja.

 

Facebook lítur þessa starfsemi hornauga sem fyrr segir og vísar í notendareglur síðunnar sem kveða á um að ekki megi stofna Facebook-reikning í nafni annarar persónu. Hefur Facebook í þessu samhengi hótað því að allir sem afhendi þriðja aðila lykilorð sitt verði bannaðir á síðunni.

 

Þar til þetta er komið í gegn heldur uSocial áfram að selja þessa þjónustu sína.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×