Góði dátinn Svejk til bjargar 18. febrúar 2009 06:00 Davíð Ingason gengst fyrir Svejk-kvöldi sem gæti reynst hið besta meðal gegn kreppunni. fréttablaðið/gva „
Á tímum sem þessum er mikilvægt að rifja upp fílósófíu Svejks, hið fádæma æðruleysi hans en hann lætur sér fátt um finnast hvað sem á dynur," segir Davíð Ingason lyfjafræðingur. Til er félagsskapur sem á það sameiginlegt að finnast Góði dátinn Svejk eftir Jaroslav Hasek fyndnasta og skemmtilegasta bók sem skrifuð hefur verið og stórmerkilegt bókmenntaverk. Góði dátinn á sér býsna marga aðdáendur á Íslandi. Bókin er til í íslenskri þýðingu Karls Ísfelds og víst er að margir hafa ritið á náttborðinu og grípa í hana sér til sáluhjálpar þegar tilvistarangistin lætur á sér kræla. Þeirra á meðal eru gáfumenni á borð við Sigmar B. Hauksson og Óttar Guðmundsson geðlækni en félagsskapurinn gengst fyrir Svejk-kvöldi á Kryddlegnum hjörtum 21. þessa mánaðar. Davíð fer fyrir hópnum. „Við ákváðum að fá einhvern góðan mann til að lesa upp valda kafla úr bókinni og fyrir valinu varð leikarinn Þór Tulinius. Til upprifjunar fyrir þá sem þekkja Svejk og kynningar öðrum. Komum saman, drekkum bjór og iðkum æðruleysi að hætti Svejks," segir Davíð. Hann er sannfærður um að svörin við kreppunni sé að finna í bókinni um Svejk. Davíð og nokkrir félagar hans eru reyndar í alþjóðlegum Svejk-samtökum en ekki eru þau mjög virk. „En þau eru þó alþjóðleg. Nei, við nokkrir félagar skráðum okkur í þessi samtök og fáum stundum tölvupóst frá þeim." - jbg
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira