Viðskipti erlent

Þúsundir Dana á höggstokknum vegna skulda

Fjöldi þeirra Dana sem lendir í vanskilum með lánin sín vex hröðum skrefum og samkvæmt könnun munu um 150.000 Daanir verða komnir á vanskilaskrá fyrir áramótin. Í augnablikinu eru þeir um 125.000.

 

Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að fleiri einstaklingar og fyrirtæki hafa fengið stimpilinn sem vanskilamenn en nokkurn tímann áður í sögu Danmerkur. Orsakirnar eru m.a. aukið atvinnuleysi og minnkandi velta hjá fyrirtækjum vegna kreppunnar.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Debitor Registret sem heldur utan um vanskil hjá fyrirtækjum og félögum er nánasta framtíð í þessum efnum ekki björt.

 

„Við erum aðeins að sjá toppinn á ísjakanum hvað fjölda vanskilafólks varðar," segir Birgir Baylund forstjóri Debitor Baylund. „Beiðnir um innheimtuaðgerðir streyma inn og við reiknum með verulegri aukningu næsta hálfa árið."

 

Fram kemur í fréttinni að vanskilin vaxa mest hjá fólki á aldrinum 36 til 45 ára og er flest þeirra karlmenn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×