Viðskipti erlent

Danskir bankar fyrir utan FIH fá högg frá Moody's

Lánshæfisfyrirtækið Moody' s lækkaði lánshæfiseinkunnir og mat á fjárhagslegum styrk til lengri tíma hjá fjölda af dönskum bönkum í morgun. Athygli vekur að FIH bankinn, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, heldur sinni einkunn í Baa3 með stöðugum langtímahorfum.

 

Meðal þeirra banka sem fá lækkun eru Nordea, Sydbank, Amagerbanken, Spar Nord, Jyske Bank og Nykredit Bank auk nokkurra smærri banka og lánastofnanna.

 

Í fréttum um málið á börsen.dk og Jyllands Posten segir að við fréttirnar hafi framangreindir bankar tekið á sig högg í kauphöllinni í Kaupmannahöfn frá opnun hennar í morgun. Mest falla hlutir í Jyske Bank eða um 2,2%, Sydbank um 1,9%, Nordea lækkar um 1,4% og Danske Bank um 1,1%.

 

Talsmaður Nordea Johan Ekwall segir að bankinn hafi ekki áhyggjur af lækkun Moody´s þar sem gert hafði verið ráð fyrir henni. „Okkar lánshæfi var lækkað um eitt þrep og það er ekki mjög dramatískt," segir Ekwall. „Við reiknum með að áhrifin verði mjög takmörkuð."

 

Mat á fjárhagslegum styrk Nordea var lækkað úr B- og niður í C.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×