Viðskipti erlent

Kostnaður við fjármálakrísuna gæti orðið 12 billjónir dollara

Bretar þurfa að greiða mest vegna kreppunnar.
Bretar þurfa að greiða mest vegna kreppunnar.
Kostnaðurinn við að taka til eftir fjármálakrísuna gæti orðið tæpar tólf billjónir dollara, samkvæmt útreikningum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Fyrir sömu fjárhæð væri hægt að gefa hverju mannsbarni á jörðinni um 380 þúsund krónur.

Þessar sláandi tölur samsvara um fimmtungi af landsframleiðslu allra þjóða heimsins. Inni í þessum útreikningum eru fjárframlög sem ríkisstjórnir heimsins veittu til banka til að varna þeim frá hruni, yfirtaka á undirmálslánum og öðrum ónýtum eignum í fjármálakerfinu sem og ábyrgðir seðlabanka og stuðningur þeirra við fjármálageirann. Ekki er víst að allur þessi kostnaður falli til en möguleikinn á því skyggir óneitanlega á áætlanir sem gerðar hafa verið varðandi endurreisn efnhag heimsbyggðarinnar.

Meirihluti kostnaðarins hefur verið reiddur fram af hinum þróuðu löndum, eða um 10,2 billjónir bandaríkjadala, á meðan einungis 1,7 billjónir dala hafa fallið til vegna þróunarlandanna.

Samkvæmt útreikningum AGS kemur kreppan til með að kosta Bretland mest, eða tæp 82 prósent af landsframleiðslu. Nú þegar hefur Bretland reitt fram um 20 prósent af landsframleiðslu sinni til að styðja við innlendar stofnanir í rekstrarerfiðleikum.

G20 löndin munu þurfa að greiða um tíu prósent af landsframleiðslu, samanlagt, vegna kreppunnar. Það er það mesta sem reitt hefur verið fram síðan í seinni heimsstyrjöldinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×