Viðskipti erlent

Klámhundur selur svikin kreditkort á netinu

Vefsíðan MitMaster í Danmörku býður upp á Mastercard kreditkort með heimild upp á 600.000 kr. og þarf aðeins að greiða rúmar 20.000 kr. fyrir herlegheitin. En síðan er svik og þekktir svikahrappar standa á bakvið hana, þar á meðal klámmyndaframleiðandi sem áður hefur komist í sviðsljós danskra fjölmiðla.

Flestir þeirra sem greiða fyrir kortin fá þau aldrei afhent og þeir fáu sem hafa fengið kort komast fljótt í raun um að engin heimild er til staðar, ekki hægt að taka út neitt nema það sem sett er inn á kortið og þar að auki þarf að borga 20.000 kr. gjald á ári fyrir þá þjónustu.

Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að forstjórarnir tveir hjá Kederan Equity sem stendur á bakvið MitMaster séu þekktir fjársvikarar. Þetta eru þeir Marc Danceu og Rene Holmgren en athygli vekur að þeir eru skráðir forstjórar í meir en 200 félögum.

„Það er mjög óvenjulegt að einstaklingar stofni svo mörg félög. Það bendir til að maðkur sé í mysunni," segir Carsten Holdum hjá dönsku neytendasamtökunum.

Marc Danceu hefur áður komið við sögu hjá Ekstra Blader, þá undir nafninu Marc Duvall. Hann reyndi mikið á sínum tíma að fá menntaskólanemendur til að leika í klámmyndum sínum.

Carlos Rodriguez forstjóri norrænu deildar Mastercard hefur miklar áhyggjur af framangreindri vefsíðu enda hefur Kederan Equity ekkert leyfi frá Mastercard til að gefa út kort á þeirra vegum. Mastercard ráðleggur þeim sem lent hafa í klóm Marc og Rene að leita til lögreglunnar.

Mastercard hefur um nokkurn tíma reynt að fá vefsíðunni lokað. Þegar það tókst í júlí skrifuðu Marc og Rene til viðskiptavina sinna og sögðu þeim að síðan hefði orðið fyrir árás tölvuþrjóta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×