Viðskipti erlent

Auðmaður ryksugaði stærsta nauðungaruppboð Danmerkur

Danski auðmaðurinn Mikael Goldschmidt var með hreint borð á stærsta nauðungaruppboði í sögu Danmerkur. Hann einfaldlega keypti allar eignirnir 310 sem í boði voru.

Eignir þær sem hér um ræðir eru íbúðir staðsettar í Ringsted. Heildarstærð þeirra nemur 27.000 fm og lóðirnar sem þær standa á ná yfir 223.000 fm svæði.

Goldschmidt, sem fyrir nokkrum árum seldi lífsverk sitt Atlas Ejendomme til Landic Propertys, segir að hann sé mjög ánægður með kaup sín á nauðungaruppboðinu og hann reiknar með því að hagnast strax á kaupunum.

Í samtali við business.dk segir Goldschmidt að í fyrstu muni íbúðunum verða breytt í leiguíbúðir og settar á markaðinn sem slíkar. Þegar fasteignamarkaðurinn í Danmörku tekur aftur við sér er síðan ætlunin að selja þær.

Ekki fylgir með í fréttinni hve mikið Goldschmidt gaf fyrir þessar 310 íbúðir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×