Viðskipti erlent

Iceland-stjórar á 800 milljóna ráðstefnu í Disney World

Yfirmannaráðstefna verslunarkeðju sem kostar 4 milljónir punda eða rúmlega 800 milljónir kr. gæti talist yfirdrifið í kreppunni. Það er ekki mat Malclom Walker forstjóra Iceland keðjunnar í Bretlandi sem bauð öllum 800 verslunarstjórum, svæðisstjórum og öðrum yfirmönnum Iceland á ráðstefnu í Disney World í Flórída í síðustu viku. Landsbankinn fer nú með tæplega 14% hlut í Iceland sem var áður í eigu Baugs.

Í frétt um málið í Retailweek segir að fyrir utan heimsóknir í Disney World var Iceland-hópnum m.a. boðið í ferðir til Universal Studios og Kennedy Space Center. Þar að auki var einn af skemmtigörðum Disney World opnaður sérstaklega fyrir hópinn og flugeldasýning haldinn í lok kvöldsins.

Malcolm Walker segir að þessari „fjárfestingu" hafi verið vel varið. Slíkt hafi hann merkt á viðbrögðum Iceland-stjóranna í henni. Og þótt flestir hafi tekið þetta sem hverja aðra skemmtiferð segir Malcolm að alvara hafi legið að baki henni.

„Þjónusta Disney World er í heimsklassa," segir Walker sem telur að hinar fjórar risadagvörukeðjurnar á Bretlandi séu farnar að bíta í hælana á Iceland. Viðbrögðin við því séu að bæta þjónustu Iceland í garð viðskiptavina sinna ennfrekar.

„Við erum að kynna okkar fólki fyrir þjónustu á heimsmælikvarða. Ef bara 10% af því koma fram í störfum okkar heima hefur ferðin verið virði hvers pennís," segir Walker. „Flórídaferðin var þar að auki verðlaun fyrir fjögurra ára hart strit þessa fólk í þágu Iceland."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×