Viðskipti erlent

Danska krónan sú fjórða vinsælasta í gjaldeyrisviðskiptum

Danska krónan er nú fjórða vinsælasta mynt heimsins til að fjárfesta með í gjaldeyrisviðskiptum. Hún er einkum vinsæl í gengiskrossinum svissneskir frankar/dönsk króna.

Í umfjöllun á börsen.dk um málið segir að menn nýti sér tiltölulega hátt vaxtastig í Danmörku til að stunda svokölluð "carry trade" viðskipti. Þar er t.d. átt við að menn taka lán í svissneskum frönkum á mjög lágum vöxtum og skipta þeim síðan í danskar krónur á töluvert hærri vöxtum. Hérlendis var þetta áður þekkt sem krónubréfaviðskipti.

Fram kemur á börsen að Danske Bank mæli með þessum viðskiptum við viðskiptavini sína með "mikilli velþóknun" eins og það er orðað. Danske Bank er sá umfangsmesti á sviði gjaldmiðlaviðskipta í Danmörku.

Gjaldmiðlasérfræðingurinn John Hydeskov hjá Danske Bank segir að "carry trade" viðskiptin séu þau elstu á þessu sviði. Nú um stundir er vaxtamunurinn miklli svissneska frankans og dönsku krónunnar tvö prósentustig.

"Stórir viðskiptavinir okkar gíra sig upp í svona viðskiptum allt að hundrað sinnum og þá fyrst fer keyrslan að verða öflug," segir Hydeskov.

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×