Formúla 1

Eckström vann Schumacher í meistaramótinu

Mathias Eckström er þrefaldur  meistari meistaranna.
Mathias Eckström er þrefaldur meistari meistaranna. mynd: kappakstur.is
Sænski ökumaðurinn Mathias Eckström vann Michael Schumacher í úrslitum í meistaramóti ökumanna í Bejing í Kína í dag.

Hann vann titilinn í einstaklingskeppninni í þiðja skipti og vann Schumacher í tveimur umferðum um brautina á sitt hvoru ökutækinu.

Eckström hefur keppt í DTM mótaröðinni þýsju síðustu ár og lét ekki stuðning heimamanna á Olympíuleikvanginum í Kína trufla sig. Schumacher er geysilega vinsæll þar í landi vegna velgengni í Formúlu 1 gegnum tíðina.

Mótið var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og verður það besta úr mótinu endursýnt um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×