Þjóðleikhússtjóri leikur hórumömmu 28. nóvember 2008 06:45 Ekki vefst fyrir þjóðleikhússtjóra að bregða sér í líki hórumömmu í Rétti. fréttablaðið/vilhelm
Lögfræðidramasjónvarpsþættirnir Réttur eru nú í tökum en þar fara þau hjón Egill Ólafsson, tónlistarmaður og leikari, og Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri með veigamikil hlutverk. Meðan Egill fer með hlutverk eldri lögmanns hér í bæ þá er hlutverk Tinnu öllu nýstárlegra. Hún leikur hórumömmu í Reykjavíkurborg. Að sögn Sigurjóns Kjartanssonar handritshöfundar er Tinna sem sköpuð fyrir hlutverkið. „Já, hún er mjög flott hórumamma," segir Sigurjón. Fréttablaðið greindi frá því fyrir um mánuði að helstu hlutverk í Rétti eru í höndum þeirra Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur, Magnúsar Jónssonar og Víkings Kristjánssonar en þau mynda þriggja manna lögfræðiteymi. Um er að ræða sex þátta sjónvarpsseríu og er hver þáttur sjálfstæður þótt þeir tengist. Leikstjóri er Sævar Guðmundsson. Fjöldi þekktra leikara kemur við sögu - þó er enginn Hilmir Snær Guðnason né Ingvar Sigurðsson. „Nei," segir Sigurjón. „Ég held bara ekki. Það er mikið af ungum leikurum en nefna má Ragnheiði Steindórsdóttur sem leikur saksóknarann Urði. Meistarar á borð við Stefán Jónsson skjóta upp kollinum. Og svo leika þau hjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors í þáttunum - þó ekki hjón. Nei, nei, það er ekkert hjónaþema í gangi. Þetta er tilviljun."
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira