Moka Myrká Arnaldar út 27. nóvember 2008 04:45 arnaldur indriðason Ekkert lát er á vinsældunum og nú stefnir í enn eitt metsöluárið hjá honum. „
Já, Myrká mokast út. Mikil söluaukning milli ára," segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Útgefendur Arnaldar Indriðasonar tefldu nokkuð djarft þegar þeir boðuðu að fyrsta prentun á nýjustu bók hans yrði í þrjátíu þúsund eintökum. Eru þess engin dæmi að skáldsaga sé prentuð hér á landi í svo mörgum eintökum. Síðasta bók Arnaldar, Harðskafi, seldist í tæplega þrjátíu þúsund eintökum um síðustu jól. En svo virðist sem Forlagsmenn hafi síður en svo ofmetið vinsældir Arnaldar því þegar er um þriðjungur bókarinnar farinn og ekki kominn desembermánuður enn. „Þetta er ótrúlegt," segir Egill og bendir á að Myrká hafi fengið afbragðs dóma. Svo virðist sem það ætli að ganga eftir sem margir hafa bent á: að kreppan kunni að reynast bókinni vel. Egill gefur í sjálfu sér ekki mikið út á það. Segir of snemmt að segja til um það. En langsamlega stærstur hluti bóksölunnar er eftir og í sögulegu tilliti hefur bókin staðið af sér kreppur. Myrká kom út fyrir tæpum mánuði og Forlagsmenn eru nú þess albúnir að leggja í aðra prentun - nokkuð sem þeir sáu ekki fyrir.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira