Real Madrid styrkti stöðu sína Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. mars 2008 22:03 Raul fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Real Madrid vann í kvöld góðan sigur á Espanyol, 2-1, eftir að hafa lent marki undir í fyrri hálfleik. Real Madrid var betri aðilinn í leiknum og kom markið gegn gangi leiksins. Espanyol fékk hornspyrnu sem var tekin stutt og kom sendingin á fjarstöngina þar sem Valdo, fyrrum leikmaður Real, skallaði knöttinn í markið. En Madrídingar náðu að jafna metin áður en flautað var til hálfleiks. Higuain var þar að verki eftir sendingu Marcelo frá vinstri vængnum. Það var svo Raul sem skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Hann slapp framjá Jarque sem braut svo á honum og dæmdi dómarinn umsvifalaust víti. Tamudo fékk svo að líta rauða spjaldið undir lok leiksins er hann fékk tvö gul spjöld á tveimur mínútum í uppbótartíma. Real Madrid er því aftur komið með sex stiga forystu á Barcelona sem á leik til góða. Börsungar mæta Villarreal annað kvöld. Það ætti að verða erfiður leikur þar sem Villarreal er í þriðja sæti deildarinnar en liðið er þó sjö stigum á eftir Barcelona. Espanyol er í fimmta sætinu með 42 stig, 20 stigum á eftir Real Madrid.
Spænski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Fleiri fréttir Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira