Ilmandi gjörningur Andreu 14. júní 2008 06:00 Smart Ilmvatn Andreu Maack sem hnusa má af í Gallerí Ágústi.
Ilmvatnssýning Andreu Maack í Gallerí Ágúst hefur vart farið fram hjá myndlistaráhugafólki í höfuðborginni, enda velilmandi myndlist með eindæmum. Sýningin, sem er fyrsta einkasýning Andreu, ber hið smellna nafna Smart og hefur vakið mikla athygli hérlendis sem erlendis, en sýningin var hluti af dagskrá hinnar nýafstöðnu Listahátíðar í Reykjavík. Á sýningunni gefur að líta og upplifa ilm sem listamaðurinn vann í samstarfi við ilmvatnsframleiðanda í Grasse, ásamt einni stórri útprentaðri blýants-teikningu sem bútuð hefur verið niður í hvorki meira né minna en 252 bita sem hanga uppi á vegg. Gestum sýningarinnar hefur gefist kostur á að velja sér hluta úr teikningunni með ilminum á til að taka með sér heim, í anda þeirrar hefðar að fá sér ilmvatnsprufur í snyrtivöruverslunum. Er óhætt að segja að sýningargestir hafi óspart nýtt sér þennan möguleika, enda ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til þess að fá að hafa listaverk með sér heim af sýningum. Nú er svo komið að fyrsta upplagið af tveimur af teikningunni kláraðist nýverið og verður af því tilefni seinna upplag verksins vígt í dag kl. 14 og mun listamaðurinn endurtaka „perfumance" - gjörning sem upphaflega var framinn á opnun sýningarinnar um miðjan síðasta mánuð. Gallerí Ágúst er til húsa að Baldursgötu 12.-vþ
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira