Góð aðsókn að Braga 2. október 2008 06:00 Myndlist Fyrsta yfirlitssýning á verkum Braga Ásgeisrssonar vekur mikla athygli.
Ef aðeins er tekið mið af aðsóknartölum má ætla að löngu hafi verið orðið tímabært að setja upp veglega yfirlitssýningu á verkum Braga Ásgeirssonar, en aðsókn á sýningu hans á Kjarvalsstöðum hefur farið fram úr björtustu vonum. Gestafjöldi frá því að sýningin var opnuð 13. september síðastliðinn er á sjöunda þúsund og hátt á annað hundrað bóka um listamanninn hafa selst. Að auki hafa skipulagðar leiðsagnir verið afar vel sóttar af gestum á öllum aldri. Þá hefur það komið gestum skemmtilega á óvart hve listamaðurinn er iðinn við að venja komur sínar á Kjarvalsstaði og eiga orðastað við þá. Bragi hefur líka staðið vaktina við að árita bókina Augnasinfóníu sem fjallar um líf hans og list, en síðastliðinn sunnudag myndaðist löng biðröð við áritunarborðið. Bragi mun árita bók sína síðar á sýningartímabilinu og verður það þá kynnt sérstaklega. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir ýmsum viðburðum tengdum sýningunni. Um nýliðna helgi var Sigurlaug Ragnarsdóttir til að mynda með leiðsögn um sýninguna en Sigurlaug hefur unnið ötullega með Braga og sýningarstjóra sýningarinnar, Þóroddi Bjarnasyni. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10-17.
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira