Sýning Braga framlengd 7. nóvember 2008 06:30 Sýning á verkum Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum hefur notið mikilla vinsælda.
Vegna mikillar aðsóknar verður Augnasinfónía, sýning Braga Ásgeirssonar á Kjarvalsstöðum, framlengd til 4. janúar næstkomandi. Um fimmtán þúsund gestir hafa nú séð sýninguna og fer aðsókn síst dvínandi. Bragi hefur sjálfur reglulega tekið þátt í leiðsögn um sýninguna og mun næst gera það á sunnudag kl. 15. Í fylgd með Braga um sýninguna fer náin samstarfskona hans, Sigurlaug Ragnarsdóttir, og munu þau ræða um einstök verk og feril Braga. Sýningin spannar sextíu ár í lífi Braga Ásgeirssonar en sýningarstjórinn Þóroddur Bjarnason hefur kosið að skipta henni upp í fjögur tímabil sem greinast fremur á milli miðla en umfjöllunarefna. Bragi hefur helgað myndlistinni líf sitt, ekki einungis sem listamaður heldur einnig í stoðgreinum listanna svo sem kennslu, greinaskrifum og listrýni, en auk þess var hann á tímabili mikilvirkur í félagsstarfi myndlistarmanna. - vþ
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira