Víóla og gítar fyrir norðan 12. júlí 2008 06:00 Helga Þórarinsdóttir og Kristinn H. Árnason Leika fallega tónlist á Norðurlandi í dag og á morgun.
Önnur sumartónleikahelgin við Mývatn fer nú í hönd og býður tónlistaráhugafólki upp á ljúfa tóna gítars og lágfiðlu. Þau Kristinn H. Árnason gítarleikari og Helga Þórarinsdóttir lágfiðluleikari koma fram á tónleikum í Reykjahlíðarkirkju í kvöld kl. 21 og í Skútustaðakirkju annað kvöld kl. 21 og leika þar létta og skemmtilega efnisskrá sem inniheldur meðal annars sónötu eftir Vivaldi, spænska tónlist og nokkrar ómissandi perlur úr íslenskri sönghefð. Kristinn er landsþekktur tónlistarmaður og leikur jafn listavel tónlist eftir Bach á klassískan gítar, rytmann í Rússíbönum og stuðið í poppinu með hljómsveitinni Hringjum. Helga Þórarinsdóttir leiðir lágfiðlusveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og leikur jafnframt með kammerhóp. Rétt er að benda á að þau Kristinn og Helga koma einnig fram á tónleikum í Byggðasafninu Hvoli á Dalvík í dag kl. 14. - vþ
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira