Boltasumarið mikla 5. júlí 2008 00:01 Það eru gömul sannindi og ný að íþróttir eru frábært sjónvarpsefni. Sem krakki horfði ég á hvert fimleikamótið á fætur öðru og hlustaði á Bjarna Fel. lýsa stökkum Natalíu Shaposhnikovu, Elenu Mukinu og annarra fimleikameistara af slíkri innlifun að það var eins og hann hefði þjálfað þær sjálfur. Þótt áhugi minn á íslenskri knattspyrnu einskorðist við það hvort Fram takist að halda sér í deildinni og ÍBV vinni síðasta leik fyrir Þjóðhátíð finnst mér erlend stórmót í fótbolta með betri sjónvarpsviðburðum. Áhugi minn á Evrópumeistaramótinu dvínaði ekki við það að vera einmitt stödd í Rotterdam þegar Hollendingum gekk sem best. Stemmningin entist langt fram á rauða nótt. Vinkonur mínar hér heima sýndu mótinu samt fjarska lítinn áhuga. Þó gat ég ekki séð annað en að þær hrifust með þegar ég lýsti því fyrir þeim hvað leikur Króata gegn Portúgölum hafði verið magnaður. Jafntefli á lokasekúndunni og vítaspyrnukeppni. Hvað biður maður um meira? Stelpurnar urðu verulega hissa þegar mér tókst að bregða fyrir mig orðasambandinu „að brenna af“. Þessu áttu þær ekki von á frá mér. Þá óx mér ásmegin og ég tók að segja þeim hvernig menn höfðu „hreinsað frá markinu“. Mín ekki alin upp í Safamýrinni fyrir ekki neitt. Í fótboltanum eru menn ekki fundnir sekir um ólöglega lyfjanotkun hægri vinstri eins og gerist til dæmis fulloft í frjálsum íþróttum. Því fær maður á tilfinninguna að knattspyrnukapparnir hafi raunverulega lagt eitthvað á sig til að öðlast þá færni sem þeir búa yfir en hafi ekki bara úðað í sig pillum. Eitt það besta við Evrópumeistaramótið í sumar var líka að sjónvarpsfréttatíminn var færður eitthvað – ég man ekki hvert – og ég vandist því af því að horfa á hann. Í blöðunum voru fréttirnar farnar að snúast um hrúta í tveimur reifum sem orðnir voru að ísbjörnum og drengi sem höfðu komið að kofunum sínum gjörónýtum. Þetta tvennt dugði til að maður áttaði sig á því að það væri gúrka. Og það var ekki fyrr en löngu eftir mótið að það rann upp fyrir mér að það voru ekki Portúgalar sem att höfðu kappi við Króata, heldur Tyrkir en ég nennti ekki að leiðrétta það við vinkonur mínar. Þetta kennir þeim bara að fylgjast sjálfar með næst. Hvað segiði, stelpur, bolti og sódavatn heima hjá mér? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun Að mása sig hása til að tefja Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda Ingibjörg Isaksen Skoðun Sparnaðarráð fyrir ferðalagið Svandís Edda Jónudóttir Skoðun Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig Birgir Dýrfjörð Skoðun Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Þjóðarmorð í beinni Arnar Eggert Thoroddsen Skoðun Ísafjarðarbær í Bestu deild Sigríður júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson Skoðun Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun
Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon Skoðun
Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun