Gönguferðir á ensku 10. júlí 2008 06:00 Úlfhildur Dagsdóttir leiðir erlenda gesti um Kvosina í Reykjavík og kynnir þeim bókmenntaarfinn á ensku.
Borgarbókasafnið í Reykjavík hefur um nokkurra ára bil boðið borgarbúum og nærsveitamönnum upp á kvöldgöngur með bókmenntalegu ívafi. Þá hefur safnið bætt við og leggur í gönguferðir fyrir enskumælandi og enskuskiljandi gesti síðan 2003 í júlí og ágústmánuði. Eru göngurnar vikulega á fimmtudagskvöldum og lagt upp frá aðalsafninu í Grófinni. Markmiðið er að kynna íslenskar bókmenntir fyrir erlendum göngugestum, hvort sem þeir eru ferðamenn eða búsettir hér á landi. Göngurnar eru framlag Borgarbókasafnins til menningarlegrar ferðaþjónustu, með sérstakri áherslu á að kynna borgina í ljósi bókmennta og sögu. Alltaf er um sömu göngu að ræða, þ.e. hvert sumar er dagskrá göngunnar eins frá viku til viku. Tekur gangan um eina og hálfa klukkustund. Leiðsögumaður er Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og með henni er bandarískur leikari sem búsettur er á Íslandi, Darren Foreman, en hann fer með textana sem kynntir eru í göngunni. Gestgjafar hér á landi ættu að benda gestum sínum á þessa vikulegu dægrastyttingu sem opnar gestkomandi nýjan glugga og sýn í samfélagið hér við Víkina.- pbb
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira