Listahátíð leggur net fyrir vorið 17. október 2008 07:00 Hrefna Haraldsdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
Listahátíð í Reykjavík verður haldin í 39. sinn á vori komanda og er nú hafinn undirbúningur fyrir hátíðina undir stjórn nýs listræns stjórnanda, Hrefnu Haraldsdóttur. Hefur hátíðin nú auglýst eftir umsóknum um tónleikahald í heimahúsum í Reykjavík í maí 2009. Óskað er eftir tónlistarfólki á öllum sviðum tónlistar. Fjöldi flytjenda má vera frá einum til fimm. Umsóknum fylgi upplýsingar um efnisskrá, flytjendur og húsnæði sem tekur að lágmarki 25 manns í sæti. Hugmyndin um stofutónleika á Listahátíð 2009 felur í sér að fá framúrskarandi tónlistarmenn til þess að bjóða gestum heim í stofu til sín. Þannig fá áheyrendur einstakt tækifæri til að njóta tónlistar í nálægð við listamennina. Til stendur að tónleikarnir fari fram á tveggja tíma fresti víðs vegar um borgina sunnudaginn 24. maí. Áætlað er að hverjir tónleikar verði 30 til 40 mínútna langir. Valið verður úr innsendum umsóknum og öllum umsækjendum svarað. Valnefndina skipa fulltrúar Listahátíðar í Reykjavík, Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) og Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH). Umsóknir berist eigi síðar en 25. nóvember til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar STOFUTÓNLEIKAR. Nánar verður greint frá greiðslu fyrir tónleikahaldið við afgreiðslu umsókna.- pbb
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira