Ljóðastund í Mosfellsbæ 15. júlí 2008 06:00 Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa.
Ljóðastund í tali og tónum fer fram í Listasal Mosfellsbæjar annað kvöld kl. 20. Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa lesa úr ljóðum sínum og þýðingum og Tríó Carls Möller fléttar inn djasstónum. Tríóið skipa þeir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Bjarni Sveinbjörnsson. Tónlistin er eftir Carl Möller og fleiri. Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér sautján ljóðabækur, hina fyrstu 1956. Hann var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2006. Ljóð Jóhanns hafa verið þýdd á um þrjátíu tungumál og hafa birst víða í tímaritum og safnritum og að auki í sérstökum bókum í Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum, á Spáni og í Noregi. Bandaríska skáldið og þýðandinn Christopher Burawa er fæddur á Íslandi og á íslenska móður. Hann kennir enskar bókmenntir og skapandi skrif við Háskólann í Arizona og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir bækur sínar og þýðingar. Hann hefur þýtt margar bækur eftir Jóhann Hjálmarsson og fyrir eina þeirra, Of the Same Mind, hlaut hann Toad Press International Chapbook Competition-verðlaunin árið 2005. Aðgangur að ljóðastundinni er ókeypis og öllum opinn.- vþ
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira