Verk Sigtryggs í New York 8. nóvember 2008 05:30 Verk Sigtryggs, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á sviði í New York fimmtánda nóvember.fréttablaðið/vilhelm
Leikrit Sigtryggs Magnasonar, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem verður haldin 15. til 16. nóvember í New York. „Það var haft samband við mig í sumar og ég spurður hvort ég ætti verk sem hefðu verið þýdd á ensku," segir Sigtryggur. „Ég sendi þeim síðasta verkið mitt Yfirvofandi og líka Herjólfur er hættur að elska og þau vildu fá að setja það upp." Sigtryggur flýgur til New York í næstu viku til að vera viðstaddur hátíðina, þar sem leikritið verður flutt á besta tíma, eða klukkan 20 á laugardagskvöldi. Eftir leiklesturinn mun hann svo taka þátt í pallborðsumræðum. Sigtryggur játar að um mikinn heiður sé að ræða fyrir sig. „Mér finnst það afskaplega mikill heiður að fá svona tækifæri til að heyra þetta lesið á sviði í New York. Þetta er bara gaman og líka gott tækifæri að heyra og sjá verkið á útlensku." Herjólfur er hættur að elska var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2003 við góðar undirtektir. Verkið Yfirvofandi var síðan sýnt á Listahátíð í Reykjavík á síðasta ári. Fyrir það var Sigtryggur tilnefndur til Grímuverðlaunanna sem leikskáld ársins. Upptökur eru einmitt að hefjast í Útvarpsleikhúsinu á Yfirvofandi þar sem Edda Arnljótsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Jörundur Ragnarsson fara með aðalhlutverkin. - fb
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira