Ímynd Reykjavíkur í kreppu 6. september 2008 03:00 16 elskendur Friðgeir, Karl, Aðalbjörg, Eva, Davíð og Ylfa vinna hjá Íkeaferðum í Örfirisey.Fréttablaðið/Vilhelm
Sviðslistahópurinn 16 elskendur býður áhorfendum á ferðaskrifstofuna Íkea-ferðir í dag. „Við lögðum upp með að fjalla um ímynd Reykjavíkur og út frá því fórum við að skoða ímynd og yfirborð annarra staða," segir Eva Rún Snorradóttir, ein elskendanna. „Svo kom kreppa og það gerði ímyndina öllu áhugaverðari. Við fengum hugmyndina fyrir um það bil ári síðan þegar Reykjavík fylltist af sígaunum. Svo tveimur dögum seinna voru þeir sendir til Noregs. Í einn dag var ímynd Reykjavíkur af evrópskri stórborg, en svo varð hún aftur að litlu Reykjavík." Skýrslan um ímynd Íslands varð þeim mikil uppspretta hugmynda. „Hún er svo rosalega alhæfingagjörn og fellur í þá gryfju að segja að Ísland sé frábært og við séum frjáls náttúrubörn sem leikum okkur á ströndinni. Þetta gamla klassíska," segir Eva. En hvernig tengist það IKEA? „IKEA er alltaf með skyndilausnir og setur allt upp í einingar. Við erum í raun að nota strúktúrinn í IKEA-verslunum og þá hugmyndafræði IKEA að fletja hlutina út." Eva tekur fram að þau eru ekki styrkt af fyrirtækinu. Hægt er að panta miða í gegnum tölvupóst á 16lovers@gmail.com og í síma 659-4263. Sýningar eru um helgina og frá 10.-16. september. Miðaverð er. 1990 krónur. - kbs
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira