Ljósmyndir skáldsins 14. júní 2008 06:00 Auður á Gljúfrasteini Mynd frá því um 1950. „
Síðbúin sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans og heimsborgarans Halldórs Laxness" er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu á þjóðhátíðardaginn næstkomandi þriðjudag kl. 13. Á sýningunni má sjá ljósmyndir sem Halldór Laxness tók á ferðum sínum innanlands og utan og heima á Gljúfrasteini. Myndefnið er samferðafólk hans, bæði fjölskylda og vinir, og svipmyndir af fólki og umhverfi þess á ýmsum slóðum. Segja má að ljósmyndirnar séu tækifærismyndir ferðalangsins, eiginmannsins, fjölskylduföðurins og vinarins Halldórs Laxness. Skáldsögur Halldórs Laxness hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og árið 1955 veitti sænska akademían honum Nóbelsverðlaun í bókmenntum fyrir „litríkan sagnaskáldskap, sem endurnýjað hefði stórbrotna íslenska frásagnarlist", eins og sagði í ummælum dómnefndar á sínum tíma. Halldór lifði næstum alla 20. öldina frá enda til enda, hann var alþjóðlegt skáld og hugsjónamaður og virkur þátttakandi í hugsjónabaráttu liðinnar aldar. Verk hans tóku þannig á málefnum sem voru efst á baugi hjá stóru rithöfundum viðburðaríkrar aldarinnar. Sýningin verður í Þjóðmenningarhúsinu fram í febrúar á næsta ári, en hún var fyrst sett upp í þýsku borginni Köln í fyrra. -vþ
Nóbelsverðlaun Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira