Prufur í dansflokk 5. september 2008 06:00 Stúdentadansflokkurinn býður nemum upp á listræna útrás samhliða námi.
Stúdentadansflokkurinn er nú að hefja sitt þriðja starfsár og munu inntökupróf í flokkinn fara fram á morgun kl. 16 í húsnæði Klassíska listdansskólans að Grensásvegi 14. Helena Jónsdóttir var listrænn stjórnandi Stúdentadansflokksins á fyrsta starfsári hans. Undir stjórn hennar setti flokkurinn upp dansleikhúsverkið Sannar ástarsögur. Annað starfsár flokksins tók Tony Verzich við honum og nú í vetur mun danshöfundurinn Andreas Constantinou taka við starfi listræns stjórnanda. Áætlað er að æfingar verði tvisvar í viku og að lögð verði áhersla á dansleikhús. Flokkurinn hefur tekið að sér ýmis verkefni um árin og státar af öflugum hópi fólks sem hefur áhuga á listsköpun samhliða akademísku námi. Allir nemar eru velkomnir í prufurnar, enda er vonast eftir fjölbreyttum hópi dansara.- vþ
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira