Ókeypis sinfóníur í kvöld 17. október 2008 06:00 Petri Sakari leiðir Sinfóníuna á tónleikum í kvöld og á morgun. Þangað eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.Mynd: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Í kvöld og á morgun býður Sinfóníuhljómsveit Íslands öllum sem áhuga hafa á tónleika í Háskólabíó. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 19.30 en á morgun verða þeir kl. 17. Á dagskránni eru sinfóníur eftir finnska tónjöfurinn Jean Sibelius, en flutningur þeirra var liður í undirbúningi hljómsveitarinnar fyrir tónleikaferð til Japans. Hljómsveitinni var boðið þangað en eins og kunnugt er hefur förinni austur verið aflýst vegna fjármálaástandsins. Ferðin er ein sú viðamesta sem skipulögð hefur verið og undirbúningur staðið í um tvö ár. Hjá hljómsveitinni ráða menn nú ráðum sínum hvernig verður fyllt í það þriggja vikna gat sem kemur í starfsemi hljómsveitarinnar. Er hin aflagða ferð mikið áfall fyrir hljómsveitina og setur strik í reikning þeirra. Áður en kom til þess varð hljómsveitin fyrir öðru áfalli sem voru ógöngur Stoða sem voru helsti styrktaraðili hennar. Ofan í kaupið bætist nú óvssa um stöðu á tónlistarhúsinu sem er í hættu. Því er um að gera fyrir alla þá sem hafa fylgst með Sinfóníunni undanfarin ár og áratugi að taka boði hennar um tónleika í kvöld og á laugardag, en þangað eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, og þannig sýna samstöðu með hljómsveitinni á þessum örlagatímum í sögu hennar. Á fyrri tónleikunum verða fluttar sinfóníur nr. 2 og 4, en á þeim síðari er röðin komin að þeim síðustu þremur, númer 5, 6 og 7. Sinfónían hefur á liðnum áratug hljóðritað allar sinfóníur Sibeliusar fyrir Naxos og eru þær nú fáanlegar í safnútgáfu. Hefur flutningurinn víða fengið hrós og er til marks um þann styrk sem hljómsveitin býr yfir á góðri stund. Stjórnandi á tónleikunum er Petri Sakari.pbb@frettabladid.is
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira