Þjóðleikhúsið hafði sigur í nágrannaslag 13. desember 2008 06:00 Þórir Sæmundsson fékk þá vafasömu nafnbót að vera klúðrari leiksins. „
Ég hef ekkert um þetta að segja," segir Halldór Gylfason. „Það er bara „no comment"," bætir hann við og skellir á blaðamann augljóslega í fúlu skapi eftir að hafa tapað fyrir Þjóðleikhúsinu í árlegum knattspyrnuleik leikhúsanna á mánudaginn síðasta. Liðsmenn Þjóðleikhússins voru hins vegar sigureifir enda ekki á hverjum degi sem þeir bera sigurorð af andstæðingum sínum. „Þetta var mikil barátta, enginn slasaðist og við unnum. Maður getur bara ekki verið sáttari," segir Björn Hlynur Haraldsson sem stjórnaði miðju Þjóðleikhússins af mikilli festu. Björn segir þá hafa klúðrað töluverðum fjölda af dauðafærum og því hafi sigurinn verið sanngjarn þegar upp var staðið. Töluverð barátta einkenndi leik leikhúsanna og eitthvað var um leikaraskap. Menn gengu vasklega fram og þurfti Halldór meðal annars að fara út af um miðjan leik eftir að hann fór að kenna sér meins. Halldór sleit hásin í leik þessara fornu fjandmanna fyrir tveimur árum og var því að snúa aftur eftir þau meiðsl. Hann kenndi sér einhvers meins en ekki er vitað á þessu stigi málsins hvort það sé alvarlegt. Annars fór leikurinn þannig að Þjóðleikhúsið náði að skora fimm mörk en Borgarleikhúsið fjögur. Maður leiksins var valinn Vignir Rafn Valþórsson en klúðrari starfsbróðir hans úr Þjóðleikhúsinu, Þórir Sæmundsson.- fgg
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira