Jóhannes: Mér var harkalega refsað Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2007 20:03 Jóhannes Þór Harðarson á landsliðsæfingu. Mynd/E. Stefán
Jóhannes Þór Harðarson segir að sér hafi verið ansi harkalega refsað af fyrrverandi þjálfara Start, Benny Lennartsson, nú í haust. Start féll um deild nú þegar norsku úrvalsdeildinni lauk í haust og var tap liðsins fyrir Strömsgodset síðla í september ansi dýrkeypt. Sigur í þeim leik hefði farið langt með að tryggja liðinu að minnsta kosti sæti í umspilskeppninni. Jóhannes Þór kom inn á sem varamaður í leiknum í stöðunni 2-1 fyrir Start. Strömsgotset jafnaði á 85. mínútu og skoraði svo sigurmark leiksins úr vítaspyrnu sem dæmd var á Jóhannes Þór í uppbótartíma. Eftir leikinn sagði Jóhannes í samtali við norska fjölmiðla að þetta hafi verið kolrangur dómur. Lennartsen refsaði svo Jóhannesi í kjölfarið með því að kippa honum alfarið úr leikmannhópi liðsins. Hann lék ekkert meira með Start á leiktíðinni. Í dag birtist viðtal við Lennartsen þar sem hann segir að vítið á móti Strömsgodset hafi verið liðinu gríðarlega dýrkeypt. „Ég vil enn meina í dag að þetta hafi aldrei átt að vera víti," sagði Jóhannes um málið í dag. „En hvað mig varðar var mér harkalega refsað í kjölfarið. Þetta gerði það að verkum að ég fékk ekkert meira að spila á tímabilinu." Hann viðurkennir að kannski hafi hann ekki staðið sig nægilega vel í leiknum. „En ég átti skilið að vera allavega í leikmannahópnum í síðustu umferðunum," sagði hann. Jóhannes Þór á eitt ár eftir af samningi sínum við Start og ætlar að spila með liðinu í 1. deildinni, þó svo að önnur lið hafi sett sig í samband við hann. „Ég hef engar áætlanir um annað en að klára minn samning hjá Start."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Fleiri fréttir Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Sjá meira