Brann getur orðið norskur meistari á morgun Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. október 2007 16:28 Ólafur Örn Bjarnson og Kristján Örn Sigurðsson, tveir af þremur íslenskum leikmönnum í Brann. Mynd/Bergensavisen
Brann mætir á morgun Álasundi í norsku úrvalsdeildinni og getur með jafntefli eða sigri tryggt sér meistaratitilinn í fyrsta sinn síðan 1963. Þrír Íslendingar leika með félaginu. Það eru þeir Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson og Ármann Smári Björnsson. Vísir náði tali af Kristjáni Erni þar sem hann var á flugvellinum í Björgvin á leið til Álasunds. „Stemningin í hópnum er mjög fín. Við hittumst aftur í dag eftir landsleikjafríið en við erum samt allir á því að klára þetta með stæl á morgun,“ sagði Kristján Örn. Eftir að Brann vann Lyn í síðustu umferð segir Kristján að allt hefði orðið vitlaust í bænum. „Fólkið í bænum er afar spennt enda langt síðan að Brann varð meistari. Við fáum því mjög góðan stuðning. En þetta er þó ekki komið ennþá.“ Þrjár umferðir eru eftir í norsku úrvalsdeildinni og nægir Brann eitt stig úr þeim leikjum. Kristján segir að leikmenn Brann ætli þó að sækja til sigurs. „Við mætum til leiks á morgun eins og við höfum gert í öllum okkar leikjum. Ef við náum góðum leik á ég von á góðum úrslitum.“
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Enski boltinn Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Enski boltinn „Þessi Kane er stórhættulegur“ Körfubolti Skrýtin ára yfir Val: „Svo kemur þetta og þá ferðu svolítið að efast“ Körfubolti Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari Sport Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Enski boltinn Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Enski boltinn Gamla Skyttan veitti City þungt högg Enski boltinn Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Fótbolti Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stefán Ingi skoraði í stórsigri Glódís hafði betur gegn Söndru Raphinha með þrennu í öruggum sigri Barcelona Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Martraðarbyrjun fyrir Frey en Júlíus Mar í draumalandi Daníel Ingi með stoðsendinguna að dramatísku sigurmarki Fanney og Thelma áfram í sænska bikarnum Genoa tengdi saman sigra Erfitt hjá Kristian og Twente í dag Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Tómas Bent þurfti að yfirgefa völlinn eftir þungt höfuðhögg Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Fylgdu eftir góðum sigri gegn Tottenham með öðrum sigri Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Viðar hafði betur gegn Hilmi er norsku meistararnir lágu í valnum Emilía byrjaði í markaleik Emelía og Sigdís báðar á skotskónum Tvö rauð spjöld á loft í slag erkifjendanna Inter missteig sig aftur og þjálfarinn fékk rautt Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Linda skoraði annan leikinn í röð Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Sjá meira