Viðskipti erlent

Hristu kínverska hrunið af sér

Frá markaði í Bandaríkjunum.
Frá markaði í Bandaríkjunum.
Bandarísku hlutabréfavísitölurnar Dow Jones og Standard & Poor's 500 hristu af sér lækkanir í fyrstu viðskiptum dagsins í Bandaríkjunum í kjölfar hruns á kínverska hlutabréfamarkaðnum og fór í methæðir við lokun markaða.

CSI-300 vísitalan í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína lækkaði um rúm 8 prósent í dag þegar fjárfestar losuðu sig við mikið af bréfum vegna ótta við að stjórnvöld í Kína ætli að kæla hlutabréfamarkaðinn með skattahækkunum. Áhrifanna gætti víða um heim, svo sem í Evrópu og í Bandaríkjunum. Áhrifin voru engu að síður lítil.

Helsta ástæðan fyrir hækkuninni í Bandaríkjunum í dag var nýtt verðmat á verslanakeðjunni Wal-Mart og verðhækkanir á hráolíu.

Gengi Dow Jones vísitölunnar hækkaði um 0,1 prósentustig og fór vísitalan við það í 13.676,32 stig. Er þetta í 27. sinn á árinu sem vísitalan slær nýtt met. S&P 500 vísitalan hækkaði á sama tíma um 0,2 prósentustig og fór í 1539,18 stig. Þetta var fjórði viðskiptadagurinn í röð sem vísitalan nær methæðum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×