Kosningavíxlar? 9. maí 2007 22:20 Starfsfélagar mínir í Íslandi í dag tóku á þriðjudaginn saman eftirfarandi lista yfir loforð ráðherra síðasta misserið og nú er spurt hvort þetta séu kosningavíxlar? Þið verðið að dæma um það sjálf. Vinstri græn vilja banna stór loforð ráðherra síðustu mánuði fyrir kosningar - ætli sé ástæða til þess? 1. Nýr samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra undirrita samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar á Íslandi. Samningurinn til 6 ára og kostnaður amk. kr. 19.635.000.000,- vísitölutryggt (um 25 mia framreiknað). Samningurinn á Word-formi (56 KB): Samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktar http://www.landbunadarraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/814 11.1.2007 2. Samningur um kennslu og rannsóknir við Háskóla Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra undirritar samning við Háskóla Íslands upp á 3.000.000.000,- í lok samningstímabilsins, árið 2011.http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/3849 14.11.2006 3. Samkomulag um eflingu íslenskrar kvikmyndagerðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra undirrita samning til næstu fjögurra ára um eflingu íslenskrar kvikmyndagerðar. Eykst úr 372 milljónum í 700 milljónir á ári árið 2010. Viðbót samtals um 982 milljónir kr. http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/3784 3.1.2007 4. Menntamálaráðherra og Akureyrarbær undirrita þriggja ára samning um menningarmál á Akureyri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, þáverandi bæjarstjóri á Akureyri og núverandi 1. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum undirrita þriggja ára samning um menningarmál á Akureyri. Alls upp á kr. 360.000.000,- frá ríki fyrir 2007-2009. http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/3836 12.12.2006 5. Börn styðja börn Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra setur af stað sérstakt þróunarverkefni í Úganda og Malaví. Kostnaður er kr. 110.000.000,- á ári, verkefnið er til tveggja ára svo um er að ræða kr. 220.000.000,- http://www.utanrikisraduneyti.is/frettaefni/frettatilkynningar/nr/3332 8.1.2007 6. Þjónustusamningur um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra undirritar þjónustusamning til þriggja ára um málefni fatlaðra á Eyjafjarðarsvæðinu. Rúmir 2,2 milljarðar króna + 95 milljónir fyrir geðfatlaða.http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3052 20.12.2006 7. Samningur um þjónustu við fatlaða á Norðurlandi vestra Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra gerir þjónustusamning til 6 ára milli ráðuneytis síns og samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra, í kjördæmi ráðherrans upp á 1900 milljónir. http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3027 28.12.2006 8. Samið um aukna þjónustu við Bláa lónið Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra semur við Bláa Lónið um þjónustu við psoriasis- og exemsjúklinga, kr. 45.000.000,- á ári til 6 ára = 2.700.000.000 kr. + 25.000.000,- kr. styrks til rannsókna á ári eða 100.000.000,- kr. á fjórum árum.http://www.heilbrigdisraduneyti.is/frettir/nr/2366 27.03.2007 9. Þróunarsjóður innflytjenda stofnaður Magnús Stefánsson tilkynnir um stofnun Þróunarsjóðs innflytjenda á íbúaþingi á Ísafirði, kjördæmi ráðherrans. Úr sjóðnum skal veita 10.000.000 kr. árlega auk þess sem ráðherra tilkynnti um að ráðist verði í sérstök tilraunaverkefni í Bolungarvík og Fjarðarbyggð, kostnaður ekki tilgreindur. Ef aðeins er miðað við næstu 4 ár er ráðherra að lofa hér 40.000.000,- auk tilraunaverkefnisins. http://felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3144 27.03.2007 10. Ferðasjóður íþrótta Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga í samræmi við tillögur nefndar sem menntamálaráðherra fól að fjalla um ferðakostnað íþróttafélaga. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar felur í sér að stefnt verði að því að framlag til sjóðsins verði 90 m.kr. á ársgrundvelli og að því marki verði náð á þremur árum. Framlagið verði þannig 30 m.kr. árið 2007, 60 m.kr. árið 2008 og 90 m.kr. árið 2009 og 2010 eða samtals 270.000.000 á næstu 4 árum.http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/4006 12.02.2007 11. Samgönguáætlun 2007-2018 Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti samgönguáætlun 2007-2018 á Ísafirði, kjördæmi ráðherrans, sama dag og henni var dreift á Alþingi. Heildartekjur og framlög til samgönguáætlunar verða 381,4 milljarðar króna.http://samgonguraduneyti.is/frettir/nr/1132 01.02.2007 12. Hert umferðareftirlit - átak til tveggja ára Sturla Böðvarsson, samgöngumálaráðherra hefur ákveðið að umferðareftirlit lögreglunnar verði stóraukið á næstunni með öflugri tækjabúnaði. 218 milljónum verður veitt í sjálfvirkt hraðaeftirlit á þjóðvegum næstu tvö árin.https://secure.fmv.is/MediaMonitoring/MediaLookup/ViewScriptPublic.aspx?script=399444 06.02.2007 13. Iðnaðarráðuneytið - 3ja ára samningur við Vistorku Iðnaðarráðuneytið hefur gert samning við Vistorku um 225.000.000 kr. á næstu þremur árum um stuðning sem tryggir samfellu í vetnisrannsóknum.http://secure.fmv.is/MediaMonitoring/_output/attachments/6.2.2007 /401337_633063324261375542.pdf 23.03.2007 14. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - hækkun um 1.4 mia til næstu 2ja ára Árni Mathiesen, fjármálaráðherra og Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra hafa undirritað viljayfirlýsingu um helmings hækkun framlaga í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, úr 700 í 1.400 milljónir á ári næstu tvö ár.http://secure.fmv.is/MediaMonitoring/_output/attachments/23.3.2007 /424239_633102566534503332.pdf 27.03.2007 15. Vesturfarasetrið - 5 ára samningur Vesturfarasetrið á Hofsósi fær tæplega 140 milljóna króna framlag úr ríkissjóði næstu 5 árin samkvæmt samningi sem var undirritaður í dag.http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/2573 22.03.2007 16. Samningur Utanríkisráðherra við Háskólann á Akureyri Utanríkisráðherra hefur undirritað samstarfssamning við Háskólann á Akureyri, í kjördæmi ráðherrans, um fjárhagslegan og faglegan stuðning við meistaranám í heimskautarétti við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Samkvæmt samningnum mun utanríkisráðuneytið leggja fram samtals 18 milljónir króna á næstu þremur árum.http://www.utanrikisraduneyti.is/frettaefni/frettatilkynningar/nr/3561 08.03.2007 17. Samningur við Utanríkisráðuneytisins við Landsnefnd UNIFEM Samstarfssamningur utanríkisráðuneytisins og Landsnefndar UNIFEM gildir í þrjú ár, frá 2007 til 2009 og hljóðar upp á 15.000.000 kr.http://www.utanrikisraduneyti.is/frettaefni/frettatilkynningar/nr/3534 30.04.2007 18. Félagsmálaráðherra semur um búsetuúrræði fyrir fatlaða í Þingeyjasýslum Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og BergurElías Ágústsson sveitarstjóri undirrituðu í dag þjónustusamning um málefni fatlaðra og samkomulag um ný búsetuúrræði og eflingu dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk í Þingeyjarsýslum. Samningurinn er til þriggja ára og samningsfjárhæð er liðlega 280 milljónir króna.http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3289 30.04.2007 19. Félagsmálaráðherra semur um búsetuúrræði fyrir fatlaða á Austurlandi Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi (SAUST), undirrituðu í dag samkomulag um verkefni til að fjölga búsetuúrræðum og efla dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatlað fólk á Austurlandi. Samkomulagið er gert í samræmi við átak í þjónustu við geðfatlað fólk, stefnu og framkvæmdaáætlun ráðuneytisins 2006-2010. Samkomulagið felur í sér að félagsmálaráðuneytið ver samtals 70,8 milljónum króna á árinu 2007 til þess að styðja verkefni gagnvart geðfötluðu fólki á Austurlandi.http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3287 30.04.2007 20. Félagsmálaráðherra gerir samning um þjónustu við fatlaða á Hornafirði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri undirrituðu í morgun þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um þjónustu við fatlaða. Síðastliðin tíu ár hefur slíkur samningur verið í gildi milli þessara aðila. Þessi nýi samningur er að fjárhæð 26,7 milljónir króna og gildir til sex ára, allt til ársins 2012. http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/3286 10.11.2006 21. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra - frumvarp um hækkun bóta til örorku- og ellilífeyrisþega. Hækkun bóta til elli- og örorkulífeyrisþega kostar 27 milljarða króna fram til ársins 2010, samkvæmtlagafrumvarpi sem heilbrigðisráðherra mælti fyrir í gær.http://www.althingi.is/altext/133/s/0353.html 27.04.2007 22. Menningarsamningur menntamálaráðherra við Eyþing Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Björn Ingimarsson, formaður sveitarfélaganna í Eyþingi, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna. Framlög ríkisins til samningsins verða 25 m.kr. á árinu 2007, 30 m.kr. árið 2008 og 31 m.kr . árið 2009.http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/4054 07.04.2007 23. Menningarsamningur menntamálaráðherra við Hvalasafnið Samningur til tveggja ára um fjárframlög að upphæð 20 milljónir á samningstímanum.http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/4049 27.04.2007 24. Háskólinn á Akureyri fær 100 milljónir til að hefja framkvæmdir við IV áfanga byggingarinnar á Sólborg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur tilkynnt að ríkisstjórnin hafi ákveðið að verja 100 milljónum króna til að hefja framkvæmdir við IV áfanga byggingarinnar á Sólborg á árinu 2007. Heildarkostnaður við byggingu IV áfanga ásamt lóðaframkvæmdum er áætlaður um 700 milljónir króna og stefnt er að því að verkinu verði lokið á þremur árum. http://www.unak.is/?m=news&f=viewItem&id=90 01.02.2007 25. Samningur ríkisins um dreifingu Rúv um gervihnött Báðum útvarpsrásum Ríkisútvarpsins og Sjónvarpinu verður endurvarpað um gervihnött frá og með 1. apríl. Við það geta útsendingar Ríkisútvarpsins náðst um allt land og miðin, sem og víða í útlöndum. Skrifað var undir þríhliða samkomulag þessa efnis í dag milli Ríkisútvarpsins, Fjarskipasjóðs og gervihnattafyrirtækisins Telenor. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um 150 milljónir króna á næstu þremur árum og veitir fjarskiptasjóður fé til þess í samræmi við markmið fjarskiptaáætlunar.https://secure.fmv.is/MediaMonitoring/MediaLookup/ViewScriptPublic.aspx?script=399416 2.5.2007 26. Menningarsamningar við landshluta Menningarsamningar undirritaðir - Sturla Böðvarsson kemur færandi hendi með samninga við Vestfirði og Norðurland vestra fyrir árin 2007, 2008 og 2009 samtals upp á 190 milljónir króna. Menningarsamningar menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við sveitarfélög á Vestfjörðum og sveitarfélög á Norðurlandi vestra voru undirritaðir í gær.http://www.samgonguraduneyti.is/frettir/nr/1199 Menningarsamningur við Suðurland verður undirritaður í dag og við Suðurnes á næstu dögum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Skoðanir Mest lesið Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun „Þetta er algerlega galið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvernig getum við stigið upp úr sorginni? Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Fersk fyrirheit: máttur nýársheita og skýrra markmiða Árni Sigurðsson Skoðun Er þetta alvöru? Bjarni Karlsson Skoðun Opið bréf til valkyrjanna þriggja Björn Sævar Einarsson Skoðun „Forðastu múslímana,“ sögðu öfgahægrimenn mér Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun Gott knatthús veldur deilum Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun