Viðskipti erlent

Microsoft og Yahoo að sameinast?

Gengi bréfa í bandarísku netveitunni Yahoo ruku upp um 17 prósent á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í dag eftir að dagblaðið The New York Post birti fréttir þess efnis að í vændum væri samruni Yahoo við hugbúnaðarrisann Microsoft.

Í blaðinu segir að fyrirtækin ræði málin í samstarfi við fjárfestingabankann Goldman Sachs. Geti svo farið að Microsoft kaupi Yahoo fyrir 50 milljarða dali, tæpa 3.200 milljarða íslenskra króna.

Breska blaðið Guardian hefur upp úr The New York Post að fyrirtækin hafi átt í samrunaviðræðum áður en blásið hafi verið til viðræðna á ný eftir gott gengi Google á síðasta ári. Goggle er sagður þyrnir í augum Microsoft-manna, sem gera hvað þeir geta til að tryggja sér aukna hlutdeild á netmarkaðnum, ekki síst á netauglýsingamarkaði en þar nemur markaðshlutdeild Google tveimur þriðju hlutum.

Að sögn The New York Post segir ennfremur að sameinist Microsoft og Yahoo muni samanlögð hlutdeild þeirra á netmarkaði einungis nema fjórðungi.

Guardian segir að ekki hafi náðst í forsvarsmenn tölvufyrirtækjanna til að stafesta fréttina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×