Viðskipti erlent

Lofar lægri verðbólgu í Bretlandi

Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, og Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands.
Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, og Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands. Mynd/AFP

Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, segir að bankinn ætli að grípa til aðgerða til að draga úr verðbólgu og muni Bretar sjá skarpa lækkun á næstu fjórum til sex mánuðum. Verðbólga mældist 3,1 prósent í mars sem kom flestu, ekki síst bankastjórn Englandsbanka, á óvart og varð King venju samkvæmt, að skrifa stjórnvöldum bréf þar sem hann gerði grein fyrir hækkuninni.

Englandsbanki ákvað fyrr í þessum mánuði að halda stýrivöxtum óbreyttum 5,25 prósentum. Sagði seðlabankastjóri að fylgst yrði grannt með þróun verðbólgu í landinu. Greinendur voru ekki á einu máli um ákvörðun bankans þrátt fyrir að flestir þeirra höfðu gert ráð fyrir óbreyttu stýrivaxtastigi.

King fundaði með fjárlaganefnd breska þingsins um stöðu efnahagsmála í gær og sagði að bankinn ætli að grípa til aðgerða til að koma verðbólga niður að tveggja prósenta verðbólgumarkmiðum bankans. Greinendur segja miklar líkur á að bankinn hækki stýrivexti í næsta mánuði um fjórðung úr prósenti hið minnasta til að draga úr einkaneyslu og hagvexti með það fyrir að lækka verðbólguna, sem hefur ekki verið hærri í áratug.

Breska ríkisútvarpið (BBC) hefur eftir King í gær, að helsta ástæðan fyrir því að verðbólga lækki jafn hratt og hann telur sé sú að raforkuverð fari lækkandi á sama tíma og útlánsvextir fjármálastofnana fari hækkandi samhliða hækkandi stýrivaxtastigi. Muni það draga úr einkaneyslu á næstu mánuðum, að hans sögn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×