Mál Jónasar fyrir Hæstarétti í morgun 20. apríl 2007 12:30
Mál Jónasar Garðarssonar, fyrrverandi formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, var tekið fyrir í Hæstarétti í morgun. Jónas var í byrjun júní á síðasta ári dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tvennt lét lífið þegar Harpa, skemmtibátur Jónasar, steytti á Skarfaskeri haustið 2005. Jónas hélt því fram við aðalmeðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hann hefði ekki verið við stýrið þegar slysið varð heldur Matthildur Harðardóttir. Matthildur og sambýlismaður hennar, Friðrik Ásgeir Hermannsson, létust í slysinu. Tíu ára sonur Jónasar slapp ómeiddur en Jónas og kona hans slösuðust nokkuð. Jónas hlaut einn þyngsta dóm sem kveðinn hefur verið upp hér á landi fyrir manndráp af gáleysi og var dæmdur í þriggja ára fangelsi. Dómurinn tók ekki mark á vitnisburði Jónasar og taldi hann hafa gert sig sekan um að reyna að koma ábyrgð yfir á þá sem létust í sjóslysinu. Dómurinn taldi einnig að Matthildur hefði lifað af slysið hefði Jónas brugðist við með eðlilegum hætti. En á meðan hún var neðan þilja að huga að sambýlismanni sínum stýrði Jónast bátnum af skerinu frá landi. Jónas var undir áhrifum áfengis þegar slysið varð. Jónas sagði sig eftir að dómurinn var kveðinn upp frá öllum trúnaðarstörfum sem hann hefur gegnt fyrir Sjómannafélagið, Sjómannasamband Íslands og Norræna flutningamannasambandið. Jónas krefst sýknu en ákæruvaldið mun fara fram á þyngri dóm yfir Jónasi en þeim sem hann fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sjóslys á Skarfaskeri Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira