Viðskipti erlent

Tvísýnt um tilboð í Sainbury

Ein af verslunum Sainsbury.
Ein af verslunum Sainsbury. Mynd/AFP

Litlu munaði í gær að ekkert yrði úr yfirtökutilboði fjárfestahópsins CVC og fleiri sjóða í bresku matvörukeðjuna Sainsbury þegar nokkrir stórir hluthafar settu sig upp á móti tilboðinu. Reiknað er með að tilboðið hljóði upp á um 10 milljarða punda, jafnvirði um 1.300 milljarða íslenskra króna.

Hluthafarnir, sem fara saman með um 20 prósenta hlut í þessari þriðju stærstu matvörukeðju Bretlandseyja, segjast ekki sætta sig við neitt tilboð undir 600 pensum á hlut. Samkvæmt því tilboði sem legið hefur í loftinu er CVC reiðubúið til að greiða á bilinu 550 til 555 pens fyrir hlutinn.

Gengi bréfa í Sainsbury stóð í 561 pensi á hlut við lokun markaða í gær. Það jafngildir því að gengið hafi hækkað um 29 prósent frá janúarlokum þegar CVC lýsti því fyrst yfir að áhugi væri fyrir yfirtöku á matvörukeðjunni.

Fjárfestasjóðurinn CVC fer fyrir hópi fjárfesta sem hug hafa á að gera yfirtökutilboð í Sainsbury. Forsvarsmenn sjóðsins leituðu til stjórnar Sainsburys í gærmorgun og lýstu yfir formlegum áhuga á félaginu með það fyrir augum að stjórnin leyfði þeim að glugga í efnahagsreikninga áður en tilboð verður lagt fram. Lokafrestur til að gera slíkt rennur út á föstudag eftir viku.

Auk CVC eru í hópinum fjárfestasjóðirnir Blackstone Group og Texas Pacific. Hópurinn Kohlberg, Kravis og Roberts (KKR) dró sig úr hópnum í gær en sjóður þeirra, sem er á meðal stærstu fjárfestingasjóða í heimi, ætlar að einbeita sér að yfirtöku á breska lyfjafyrirtækinu Alliance Boots, einu stærsta fyrirtæki í þessum geira í Bretlandi. Tilboð sjóðsins er jafnhátt yfirtökutilboði sjóðanna allra í Sainsbury.

Verði gengið að yfirtökutilboðinu í Sainbury verða þetta stærstu fyrirtækjakaup í Bretlandi til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×