Viðskipti erlent

Hráolíuverð ekki hærra á árinu

Heimsmarkaðsverð á hráolíu tók kipp eftir að Íranar tóku 15 breska sjóliða höndum á Persaflóa á föstudag. Verðið rauk upp í 62,65 bandaríkjadali á tunnu skömmu síðar en slík verðlagning á svartagullinu hefur ekki sést á mörkuðum á þessu ári.

Verð á Brent Norðursjávarolíu fór í 63,68 dali á tunnu á markaði en þetta er hæst verð á olíutunnu síðan í nóvember í fyrra.

Stjórnvöld í Íran og Bretlandi deila um það hvort sjóliðarnir hafi verið innan landhelgi Íran eður ei er þeir voru handteknir. Hvað sem því líður segja greinendur líkt og olíu hafi verið skvett á eld því helstu fjármálamarkaðir séu viðkvæmir fyrir hvers kyns tíðindum. Það hafi sýnt sig þegar olíuverðið rauk upp í kjölfar handtökunnar, að sögn breska ríkisútvarpsins.

Verðið hefur dalað nokkuð á markaði í Bandaríkjunum síðan þá og stendur nú í 62,28 dölum á tunnu en verð á Brent Norðursjávarolíu stendur í 62,18 dölum á tunnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×