Viðskipti erlent

Hlutabréf lækka í Evrópu

Úr þýsku kauphöllinni.
Úr þýsku kauphöllinni. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa á helstu fjármálamörkuðum í Evrópu lækkuðu nokkuð í dag. Mesta lækkunin var á gengi bréfa í stórum alþjóðlegum fjármálafyrirtækjum á borð við Credit Suisse, sem lækkaði um 2,8 prósent, og Deutsche Bank, sem lækkaði um 3,4 prósent. Lækkanirnar eru tengdar lækkunum á Wall Street í Bandaríkjunum í gær en íbúðalánamarkaðurinn vestanhafs dró helstu vísitölur niður í gær.

Franska CAC-vísitalan hefur lækkað um 1,7 prósent það sem af er dags en þýska DAX-vísitalan hefur farið niður um 1,6 prósent. Þá gætir nokkurrar lækkunar í Bretlandi. Hún er engu að síður ekki jafn mikil og á öðrum mörkuðum.

Down Jones og Nasdaq-vísitölurnar lækkuðu um tæp tvö prósent við lokun markaða í Bandaríkjunum í gær eftir að fyrirtæki á íbúðalánamarkaði urðu fyrir barðinu á mikilli aukningu vanskila þar í landi. Verst fóru þó fyrirtæki sem veita íbúðalán til fólks með slæma greiðslustöðu og hafa lent í erfiðleikum í bankakerfinu. Getur svo farið að margar fjármálastofnanir verði að afskrifa stór útlán vegna vanskila fólks. Segja fjölmiðlar vestra að vanskil hafi ekki verið með verra móti í 37 ár.

Lækkanir eru sömuleiðis í Kauphöll Íslands en úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,92 prósent frá opnun markaðarins í dag. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur lækkað mest, um 3,82 prósent. Næstmesta lækkunin er á gengi bréfa í Glitni banka, 2,57 prósent.

Engar hækkanir eru í Kauphöllinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×