Viðskipti erlent

Slæm staða á bandaríska íbúðalánamarkaðnum

Vanskil á fasteignalánamarkaði og eignaupptaka vegna ógreiddra lána hafa ekki veri með verra móti í Bandaríkjunum í 37 ár, samkvæmt upplýsingum frá samtökum banka á íbúðalánamarkaði þar í landi. Samtökin segja ástandi á síðasta ársfjórðungi 2006 hafa verið sérstaklega slæmt og reikna með að fasteignamarkaðurinn sé að kólna hratt.

Staðan á einungis við lánveitendur sem veita þeim íbúðalán sem hafa ýmist slæma greiðslusögu eða eiga í fjárhagserfiðleikum. Fjármálastofnanir hafa margar hverjar verið gagnrýndar fyrir lánveitingar sem þessar enda er gert ráð fyrir að einhver þeirra verði gjaldþrota vegna mikilla vanskila lántakenda. Þá hafa margir greint frá því, að þeir gætu þurft að afskrifa mikið magn lána.

Samkvæmt upplýsingum samtaka bankanna jukust vanskil á íbúðalánamarkaði í Bandaríkjunum um 4,95 prósent á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Til samanburðar jukust vanskilin um 13,3 prósent á íbúðalánamarkaði sem sérhæfir sig í lánveitingum til fólks með slæma greiðslusögu.

Niðurstaðan hefur haft áhrif á margar af stærstu fjármálastofnunum Bandaríkjanna sem skráð eru á markað og hefur dregið helstu vísitölur niður. Bæði Nasdaq-vísitalan og Dow Jones lækkuðu um rétt tæp tvö prósent við lokun markaða vestanhafs í gær en þetta er önnur mest lækkun síðasttöldu vísitölunnar á árinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×