Viðskipti erlent

Fyrsta tapár hjá Airbus

Ein af þotum Airbus.
Ein af þotum Airbus.

Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus skilaði tapi upp á 572 milljónir evra, jafnvirði 50,7 milljarða íslenskra króna, á síðasta ári. Þetta var fyrsta taprekstrarárið í sögu félagsins. Erfitt ár er að baki hjá Airbus, sem í tvígang greindi frá töfum á afhendingu A380 risaþotum frá félaginu.

Tapreksturinn dró niður afkomu móðurfélagsins EADS en hagnaður þess nam 99 milljónum evra á árinu. Þetta jafngildir rétt tæplega 8,8 milljörðum króna samanborið við 1.676 milljóna evra, 148,6 milljarða króna, hagnað árið 2005.

Að sögn forsvarsmanna EADS bendir flest til þess að Airbus muni skila miklu tapi á þessu ári. Afhending á risaþotunum er hins vegar á áætlun en gert er ráð fyrir að Singapore Airlines fái fyrstu þoturnar afhentar fyrir lok þessa árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×