Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands 1. mars 2007 10:00
Jörundur Svavarsson, prófessor við Háskóla Íslands og Bjarni K. Kristjánsson, frá Hólaskóla, munu halda erindi í fyrirlestraröðinni Undur Veraldar laugardaginn 3. mars. Ber erindið heitið Leyndarmál hraunanna - elstu dýr Íslands. Er það Raunvísindadeild Háskóla Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrarröðinni. Verður erindið haldið í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, sal 132 og hefst klukkan 14:00. Íslenskt grunnvatn var til skamms tíma talið vera líflaust. Á undanförnum árum hefur hins vegar komið í ljós að í grunnvatni í gljúpu hrauni lifa tvær tegundir marflóa. Þessar tvær tegundir finnast eingöngu á Íslandi. Í erindinu verður fjallað um útbreiðslu tegundanna og lifnaðarhætti þeirra. Verður kynnt tilgáta þess eðlis að þessar tegundir hafi lifað undir jökli á ísöldum og séu því elstu núlifandi tegundir landsins. Enn fremur verður leitað svara við spurningunni um hvaðan þessar dýrategundir komu upphaflega og hvernig þær komust til Íslands. Undur Veraldar
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira