Barcelona og Real Madrid kljást um 11 ára gutta 24. febrúar 2007 13:45 Frank Rikjaard hefur augastað á 11 ára gamla undrabarninu. MYND/Getty
Laureano Ludena er 11 ára argentínskur sóknarmaður sem þykir einn efnilegasti leikmaður sem upp hefur komið í heimalandi sínu. Barcelona og Real Madrid eru nýjustu félögin sem bætast í slaginn um undirskrift Ludena, en áður höfðu öll stærstu lið Argentínu fengið hann á reynslu til sín. Fjölskylda leikmannsins segir hins vegar líklegast að hún muni flytja til Evrópu. Luduena þessi spilar með lítt þekktu liði Pozo del Molle þar sem hann hefur farið á kostum með unglingaliði félagsins og skorað 160 mörk í 75 leikjum frá árinu 2005. Hann mun fara á reynslu til Barcelona, Real Madrid og Espanyol á næstu dögum en áður hefur hann verið við æfingar hjá River Plate og Boca Juniors í Argentínu. "Við ætlum að fara til Spánar í 15 daga en síðan munum við snúa aftur heim og þá mun ég, í samráði við fjölskyldu mína, ákveða hvar ég muni spila. Ég er rólegur og einbeiti mér að því að vera í sem bestu formi þegar ég æfi hjá spænsku liðunum," segir Ludena. Ramon Maddoni, þjálfari Boca Juniors, sem getur státað sig af því að hafa uppgötvað leikmenn á borð við Juan Roman Riquelme, Fernando Gago og Juan Pablo Sorin, hefur látið hafa eftir sér að hann hefi aldrei séð aðra eins hæfileika hjá leikmanni eins og í tilviki Ludena.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Svona verður Ísland heimsmeistari Handbolti Arnar ráðinn landsliðsþjálfari Fótbolti Svekktir Svíar telja Ísland í mikið léttari helmingi HM Handbolti Leikstjórnandi Portúgals féll á lyfjaprófi og missir af HM Handbolti Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Tottenham | Norður-Lundúnaslagurinn Enski boltinn Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Enski boltinn Stökk óvænt til á HM: „Mér var alveg sama“ Handbolti „Karfan er æði en lífið er skítt“ Körfubolti Eltihrellir Caitlin Clark með uppsteyt í dómsal Körfubolti Fleiri fréttir Valur semur við norskan miðvörð Arnar ráðinn landsliðsþjálfari Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Í beinni: Arsenal - Tottenham | Norður-Lundúnaslagurinn Klopp: Ég held partý ef Man City missir titlana Víkingar með ólöglegan leikmann á móti KR Slot segir að Forest sé í titilbaráttu Glazer-systkinin dvöldu á Vopnafirði í sumar Arftakar Linekers í Match of the Day kynntir Fenginn aftur til Chelsea og spilar ekki í kvöld Hákon og Mannone hetjurnar Freyr yfir sig stoltur: „Mikilvægt að sjá börnin sín vaxa í þessu lífi sem við höfum valið“ Nökkvi í höfn í Rotterdam og getur aftur labbað á kaffihús „Eitthvað annað og stærra en ég hef nokkurn tímann upplifað“ Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Karius mættur í þýsku B-deildina Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Malen mættur til Villa Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Sven-Göran skildi eftir sig skuldir upp á einn og hálfan milljarð Engin stig tekin af ensku liðunum Sjá meira