Viðskipti erlent

Warner býður í EMI

Robbie Williams.
Robbie Williams.

Bandaríski útgáfurisinn Warner Music hefur gert tilboð í útgáfufélagið EMI. Ekki er um yfirtökutilboð en ekki er ólíklegt að út í það verði farið, að sögn forsvarsmanna EMI. Tilboð sem þetta er enginn nýlunda því bæði fyrirtækin hafa ítrekað reynt að kaupa hvort annað á síðastliðnum sjö árum.

Tilboð Warner nú er tilkomið vegna þess að EMI gaf út neikvæða afkomuviðvörun vegna annars ársfjórðungs í síðustu viku. Sagði í tilkynningu frá EMI í kjölfarið að afkoma fyrirtækisins gæti orðið talsvert undir væntingum greinenda. Þetta er annað árið í röð sem fyrirtækið gefur út afkomuviðvörun sem þessa.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×