Thai Airways fær afslátt hjá Airbus 14. febrúar 2007 11:30 A380 risaþota frá Airbus
Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus hefur ákveðið að veita taílenska flugfélaginu Thai Airways afslátt á átta A330 farþegaþotum frá Airbus. Ástæðan eru tafir á afhendingu A380 risaþotanna, sem er tveimur árum á eftir áætlun. Thai Airways hafði pantað sex risaþotur frá Airbus en hótaði að draga kaupin til baka ef flugvélaframleiðandinn veitti flugfélaginu ekki afslátt. Flugfélagið átti upphaflega að fá risaþoturnar afhentar eftir tvö ár en allt stefnir nú í að af því verði ekki fyrr en árið 2011. Tafir á afhendingu A380 risaþotanna hefur sett Airbus í talsverðan vanda. Nokkur flugfélög hafa hótað að hætta við kaup á risaþotunum. Þá hafa nokkur flugfélög dregið kaup á þotunum til baka. Þar á meðal er bandaríska þjónustufyrirtækið FedEx. Afsláttur flugfélagsins nemur 10 milljónum bandaríkjadölum, jafnvirði 683,4 milljónum íslenskra króna. Hver farþegaþota af gerðinni A330 kostar, að afslættinum meðtöldum, um 90 milljónir bandaríkjadala, rúman 6,1 milljarð íslenskra króna.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira