Miðvikudagserindi Orkugarðs 5. febrúar 2007 14:47
Stefanía G. Halldórsdóttir, sérfræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar, mun flytja miðvikudagserindi Orkustofnunar næstkomandi miðvikudag. Ber erindi hennar heitið Vatnafarsleg flokkum vatnssvæða á Íslandi - Hvernig bragðast landsvæði við úrkomu og miðla henni? Verður fræðsluerindið haldið í Víðigemli, sal Orkugarðs að Grensásvegi 9 í Reykjavík, á milli klukkan 13:00 og 14:00 miðvikudaginn 7. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomir. Meðal verkefna sem tengjast rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma er flokkun á ýmsum eiginleikum fallvatna sem nýta má til að meta til dæmis verndargildi þeirra til mótvægis við annað nýtingargildi. Flokkun sem þessi nýtist einnig við úttekt á vötnum í tengslum við upptöku vatnatilskipunar Evrópusambandsins. Til að vinna flokkunina var settur á laggirnar vinnuhópur sem Sigurður Guðjónsson, hjá Veiðimálastofnun, stýrði. Ákveðið var að hópur Orkustofnunar tæki að sér að búa til vatnafræðilega flokkun fyrir landið og er tilgangurinn með slíkri flokkun að greina vatnafræðileg einkenni vatnasviða sem endurspegla náttúrulegt ástand viðkomandi vatna. Vatnsföll á Íslandi eru ólík eftir rennslisháttum þeirra og mótun farvega. Þeim hefur verið skipt í þrjá meginflokka eftir uppruna vatnsins og söfnun þess í árnar. Þessi flokkun hefur dugað vel til margra hluta en með auknum rannsóknum og þekkingu er mögulegt að flokka vatnsföllin enn nánar. Munu verða kynnt drög að slíkri flokkun í miðvikudagserindinu. Heimasíða Orkustofnunar
Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira